EIMSKIP: Ársuppgjör 2021


Helstu atriði í afkomu ársins 2021

  • Methagnaður samstæðunnar á árinu 2021.
  • Góður árangur í áætlunarsiglingum eftir mörg ár af óviðunandi afkomu. Helstu drifkraftarnir eru árangursríkar breytingar á siglingakerfinu og markviss tekjustýring sem studdir eru af góðu magni og hagstæðri þróun á alþjóðavísu.
    • Aukning í flutningi á ferskvöru með aukinni áherslu, aðlögunarhæfni og þróun í matvælageiranum.
    • Verulegur magnvöxtur í Trans-Atlantic flutningum.
  • Afkoma í alþjóðlegri flutningsmiðlun var sterk, sérstaklega í Asíu, á markaði sem einkennist af mjög háum alþjóða flutningsverðum sem og skorðum á afkastagetu.
    • Góð afkoma ásamt vaxandi hlutdeild flutningsmiðlunar í rekstri Eimskips dregur úr hefðbundnum árstíðasveiflum í afkomu.
  • Tekjur námu 882,7 milljónum evra og hækkuðu um 214,4 milljónir evra eða 32,1% samanborið við árið 2020. 
  • Aðlagaður kostnaður nam 768,4 milljónum evra sem er hækkun um 161,8 milljónir evra milli ára, sem skýrist að mestu af auknum  umsvifum og verulegri hækkun kostnaðar tengdum flutningsbirgjum.
    • Kostnaður er aðlagaður vegna sáttar sem gerð var við Samkeppniseftirlitið á öðrum ársfjórðungi að fjárhæð 10,2 milljónir evra.
  • Mjög góð aukning í EBITDA þar sem aðlöguð EBITDA nam 114,3 milljónum evra samanborið við  61,7 milljónir evra á síðasta ári sem er aukning um 52,6 milljón evra.  Aðlagað EBIT nam 63,3 milljónum evra samanborið við 17,1 milljónir evra á sama tímabili 2020.
  • Mjög gott framlag frá hlutdeildarfélaginu ElbFeeder á árinu 2021 vegna hækkunar á leiguverði skipa á alþjóðamörkuðum ásamt sölu á einu skipi félagsins.
  • Veruleg aukning var í hagnaði tímabilsins þar sem aðlagaður hagnaður nam 50,6 milljónum evra samanborið við 4,5 milljónir evra á árinu 2020. 
  • Viðhaldsfjárfestingar ársins voru lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir og námu 13,1 milljón evra samanborið við 12,9 milljónir evra árið 2020.
  • Nýfjárfestingar voru óverulegar á árinu og námu 2,3 milljónum evra samanborið við 39,8 milljónir evra árið 2020. Hins vegar skýra fjárfestingar í nýjum skipum árið 2020 stærstan hluta af þeirri fjárhæð.
  • Sjóðstreymi frá rekstri var sterkt á árinu sem og lausafjárstaða félagsins í lok árs.
  • Leiguskuldbindingar aukast um 55,9 milljónir evra, að mestu vegna hærri leiguverða og lengri leigusamninga um gámaskip.
    • Öll gámaskip sem félagið leigir eru nú á langtímasamningum. Hækkun á leiguverði hefur enn ekki komið að fullu fram í kostnaði.
  • Minnkandi skuldsetning þar sem skuldsetningarhlutfall var 1.98x í árslok samanborið við 3.33x í árslok 2020 en langtímamarkmiðið er 2-3x. Eiginfjárhlutfall var 41,2% í árslok samanborið við langtímamarkmið um 40%.
  • Stjórn félagsins mun leggja til á aðalfundi, sem haldinn verður 17. mars, að greiða um 17,7 milljónir evra í arð fyrir árið 2021 og lækka hlutafé um fjárhæð sem er samsvarandi um 7,5 milljónum evra.
  • Stjórnendur eru þakklátir fyrir framúrskarandi störf og frumkvæði starfsmanna Eimskips um allan heim í krefjandi rekstrarumhverfi.

Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs 

  • Góð rekstrarafkoma í bæði áætlunarsiglingum sem og í alþjóðlegri flutningsmiðlun.
    • Mjög sterkt magn í útflutningi frá Íslandi.
    • Frábær afkoma í flutningsmiðlun í Asíu.
    • Heilt yfir voru umsvif í desember mikil samanborið við fyrri ár.
  • Áframhaldandi ójafnvægi á alþjóðaflutningsmörkuðum og búist við að svo verði fram eftir ári 2022.
  • Tekjur námu 254,7 milljónum evra og hækkuðu um 79,1 milljónir evra eða 45% samanborið við Q4 2020.
  • Umtalsverðar verðhækkanir frá flutningsbirgjum hafa í för með sér aukningu í tekjum sem og kostnaði.
  • Góður tekjuvöxtur í flutningsmiðlun með hærri framlegð þrátt fyrir minna magn.
  • Kostnaður nam 223,3 milljónum evra sem er hækkun um 38,9% og skýrist að mestu af verulegri aukningu í kostnaði vegna kaupa á þjónustu flutningsbirgja.
    • Launakostnaður jókst um 4,1 milljónir evra eða um 14,5%. Þar af nema gjaldeyrisáhrif 1,8 milljónum evra og 2,3 milljónir evra eru m.a. vegna aukinna umsvifa,  almennra launahækkana og einskiptis jólagreiðslu til allra starfsmanna.
  • Verulegur vöxtur var í EBITDA sem nam 31,5 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 14,9 milljónir evra fyrir sama tímabil 2020.  EBITDA hlutfall var 12,4% samanborið við 8,5% fyrir sama tímabil síðasta árs.
  • Hagnaður tímabilsins nam 13,7 milljónum evra samanborið við 0,8  milljónir evra fyrir sama tímabil ársins 2020.

VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI

„Ég er mjög ánægður með frammistöðuna á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild en við skilum nú metafkomu. Framlag starfsmanna var framúrskarandi og okkur tókst að halda uppi háu þjónustustigi í mjög krefjandi rekstrarumhverfi. Fjárhagslega héldum við áfram að byggja á samþættingu og hagræðingu síðustu ára, þeim aðlögunum sem gerðar hafa verið á rekstrinum  ásamt virkri tekjustýringu ásamt hagstæðu ytra umhverfi, sérstaklega á alþjóðaflutningsmörkuðum. EBITDA var sterk á árinu og nam 114,3 milljónum evra og hefur aðlagaður hagnaður aldrei verið hærri en hann nam 50,6 milljónum evra.

Hlutfall tekna sem eiga uppruna sinn utan Íslands hefur farið vaxandi og hefur í raun aldrei verið hærri en það var á fjórða ársfjórðungi eða 61%. Alþjóðlega flutningsmiðlunin okkar skilaði sterkri niðurstöðu, sérstaklega í Asíu, á markaði sem einkenndist af mjög háum alþjóðaflutningsverðum og skorðum á afkastagetu meirihluta ársins. Þessi aukna hlutdeild og góð frammistaða á alþjóðasviðinu okkar hefur dregið úr hefðbundinni árstíðasveiflu í afkomu.

Við höfum lagt mikla áherslu á að bæta afkomuna í áætlunarsiglingum sem er nú að skila sér. Magn í útflutningi frá Íslandi var sterkt og við hlökkum til að veita viðskiptavinum okkar í sjávarútvegi flutningalausnir á yfirstandandi loðnuvertíð. Magn í Trans-Atlantic þjónustunni okkar jókst verulega á árinu og eftirspurn eftir flutningi vestur um haf til Norður Ameríku er áfram mikil. Magn til og frá Færeyjum jókst eftir því sem leið á árið eftir að hafa farið hægt af stað t.d. vegna áframhaldandi COVID-19 áhrifa og breyttum markaðsaðstæðum í kjölfar Brexit.  Afkoman á innanlandssviði var sterk og naut góðs af magni í áætlunarsiglingum.

Við leitumst við að bjóða viðskiptavinum okkar uppá framúrskarandi þjónustu sem leiðandi flutningafyrirtæki í Norður Atlantshafi. Síðustu tvö til þrjú ár höfum við farið í stefnumarkandi fjárfestingar í tæknilausnum til að styðja við þjónustu til viðskiptavina okkar og erum t.d. að innleiða Microsoft Customer Engagement, ný kerfi fyrir áætlunarsiglingar og flutningsmiðlun, gámastýringarkerfi og nýtt uppgjörs og áætlunarkerfi.

Rík áhersla er lögð á sjálfbærni í rekstri Eimskips. Við höldum áfram að stíga skref í átt að notkun grænnar orku í rekstrinum okkar m.a. með fjárfestingum í rafknúnum hafnarkrönum og umhverfisvænni gámalyfturum, flutningabílum og smærri bílum. Það er ánægjulegt að sjá að nýju skipin okkar Brúarfoss og Dettifoss eru að skila minnkaðri losun pr. flutta einingu. Þrátt fyrir það erum við meðvituð um þörfina á nýjum orkugjafa fyrir skip á næstu árum til að ná markmiðum um minnkun útblásturs.

Árið 2022 fer vel af stað og er afkoman hingað til framar væntingum, bæði í áætlunarsiglingum og flutningsmiðlun og við erum bjartsýn á útlitið bæði með tilliti til magns og framlegðar. Nú er gert ráð fyrir að þær óvenjulegu aðstæður sem einkennt hafa alþjóðlega flutningamarkaði munu vara fram á seinni helming ársins.“

KYNNINGARFUNDUR 18. FEBRÚAR 2022

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti ársreikning samstæðu Eimskips fyrir árið 2021 á stjórnarfundi þann 17. febrúar 2022. Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 18. febrúar kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir lok dags 17. febrúar. Fundurinn verður einnig rafrænn og verður honum streymt beint á fjárfestasíðu Eimskips www.eimskip.com/investors. Þar munu Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri og María Björk Einarsdóttir fjármálastjóri kynna ársuppgjör félagsins. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður einnig hægt að nálgast á fjárfestasíðunni.

FREKARI UPPLÝSINGAR

Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 3399, netfang: investors@eimskip.com .

María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri , sími: 774 0604, netfang: maria@eimskip.com.

TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA

Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.

Viðhengi



Attachments

Eimskipafélag Íslands hf. Consolidated Financial Statements 2021 549300IUR8Q7Y44KBL02-2021-12-31-en.zip-viewer 549300IUR8Q7Y44KBL02-2021-12-31-en Eimskip - 2021 Financial Results - Investor Presentation Eimskip - Sustainability Statement 2021