Reginn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 7 keypti Reginn 592.597 eigin hluti að kaupverði 20.582.387 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
14.2.202214:28:47399.88534,7013.876.010
18.2.202215:09:0728.91934,801.006.381
18.2.202215:09:07163.79334,805.699.996
Samtals 592.597 20.582.387
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. febrúar 2022.

Reginn átti 1.199.655 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 1.792.252 eigin hluti eða sem nemur 0,10% af útgefnum hlutum í félaginu.

Reginn hefur keypt samtals 1.792.252 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem 0,10% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 61.690.565 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.060.241 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262