Kvika banki hf.: Birting ársreiknings og kynningarfundur fimmtudaginn 24 .febrúar


Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki ársreikning bankans fyrir árið 2021 á stjórnarfundi á morgun, fimmtudaginn 24. febrúar og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 24. febrúar kl. 16:15, í höfuðstöðvum bankans, á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Bankinn gleðst yfir því að geta nú boðið fjárfesta velkomna í höfuðstöðvar sínar á ný og verður boðið upp á léttar veitingar á fundinum.

Fundinum verður einnig streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð en upptaka með enskum texta verður gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku: https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/fjarfestakynning-24-febrúar-2022/ 

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is

Fjárfestakynning sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg fyrir fundinn.