Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa


Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 24. febrúar 2022. Gefin voru út skuldabréf í flokknum, OR180242 GB.

Flokkurinn er óverðtryggður með föstum vöxtum og jöfnum afborgunum tvisvar á ári fram að lokagjalddaga þann 18. febrúar 2042.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 3.560 m.kr., þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 5,35% - 5,70%.

Tilboðum að fjárhæð 1.500 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,39%. Stærð flokksins eftir stækkun verður 5.698m.kr.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.


Nánari upplýsingar veita: 

Bjarni Freyr Bjarnason, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: bjarni.freyr.bjarnason@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com