Í viku 8 keypti Reginn 399.885 eigin hluti að kaupverði 13.596.090 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
25.02.2022 | 15:04:40 | 399.885 | 34,00 | 13.596.090 |
Samtals | 399.885 | 13.596.090 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. febrúar 2022.
Reginn átti 1.792.252 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 2.192.137 eigin hluti eða sem nemur 0,12% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt samtals 2.192.137 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem 0,12% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 75.286.655 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.060.241 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262