Reginn hf.: – Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar á aðalfundi 10. mars 2022


Aðalfundur Regins hf. verður haldinn fimmtudaginn 10. mars 2022 kl. 16:00 í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Rímu fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar og tilnefningarnefndar Regins hf. rann út þann 3. mars sl.

Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Í framboði til aðalstjórnar eru:

Albert Þór Jónsson

Benedikt Olgeirsson

Bryndís Hrafnkelsdóttir

Guðrún Tinna Ólafsdóttir

Heiðrún Emilía Jónsdóttir

Tómas Kristjánsson

Í framboði til tilnefningarnefndar eru:

Árni Gunnarsson

Guðfinna S. Bjarnadóttir

Ína Björk Hannesdóttir

Mat stjórnar er að öll framboð séu gild sbr. 63.gr.a. hlutafélagalaga nr. 2/1995.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar og tilnefningarnefndar eru í viðhengjum auk uppfærðrar skýrslu tilnefningarnefndar.

Engar breytingar hafa orðið á dagskrá og tillögum sem birtar voru 16. febrúar sl. Önnur fundargögn tengd aðalfundi, umboðsform, skýrsla tilnefningarnefndar o.fl. má nálgast á vef félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur.

Kópavogur 4. mars 2022

Stjórn Regins hf.

Viðhengi



Attachments

Reginn hf. - Frambjóðendur til stjórnar 2022 Reginn hf. - Frambjóðendur til tilnefningarnefndar 2022 Reginn hf. - Uppfærð skýrsla tilnefningarnefndar - 04032022