Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn föstudaginn 11. mars 2022 kl. 11.00 í þingsal 2 á Icelandair Hotel Reykjavik Natura, Nauthólsvegi 52.
Engar breytingar hafa orðið frá áður birtri dagskrá og tillögum sem lagðar verða fyrir fundinn, en þær má sjá hér.
Núverandi stjórnarmenn félagsins gefa allir kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Framboðsfrestur er nú runninn út samkvæmt samþykktum félagsins og hafa frekari framboð ekki borist.
Stjórnarmenn félagsins eru:
Gréta María Grétarsdóttir
Kristinn Albertsson
Martha Eiríksdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Þórarinn V. Þórarinsson
Þar sem stjórn félagsins skal skipuð fimm einstaklingum er ljóst að framangreindir aðilar eru sjálfkjörnir til áframhaldandi setu í stjórn félagsins á aðalfundinum án sérstakrar atkvæðagreiðslu.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í greinargerð tilnefningarnefndar sem sjá má hér.
Hluthafar og umboðsmenn þeirra geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 10.15 á aðalfundardag.
Þeir hluthafar sem þess óska geta forskráð sig á aðalfundinn og munu atkvæðaseðlar þeirra þá vera tilbúnir er mætt er á fundinn og afhentir gegn framvísun umboðs (ef við á) og skilríkja.
Forskráning fer fram með því að senda eftirtaldar upplýsingar á netfangið adalfundur@reitir.is: