Eimskip: Breytingartillaga til aðalfundar 2022


Breytingartillaga varðandi dagskrárlið 6 (Tillaga um starfskjarastefnu félagsins) hefur borist frá Gildi lífeyrissjóð.

Breytingartillagan verður tekin fyrir á aðalfundinum undir þessum lið og um efni hennar vísast til meðfylgjandi tillögu.


Eimskip minnir hluthafa vinsamlega á að hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig á vefsíðu Lumi eigi síðar en kl. 12.00 þann 16. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af lögmætum skilríkjum (vegabréf eða ökuskírteini) og umboð í tilviki lögaðila. Skráning hjá Lumi er skilyrði fyrir þátttöku í fundarstörfum og miðast mæting við hana hvort sem hluthafar eru á staðnum eða taka þátt með Lumi.

Öll gögn fundarins eru aðgengileg á vefsíðu aðalfundar 2022

Viðhengi



Attachments

Breytingartillaga Gildis á aðalfundi Eimskip 2022