Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930 („Kvika“), verður haldinn fimmtudaginn 31. mars 2022, kl. 16:00, á Grand Hótel, Háteigur, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
- Ársreikningur félagsins fyrir árið 2021 og ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu.
- Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
- Tillaga um lækkun hlutafjár með niðurfellingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins.
- Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
- Tillaga stjórnar um ráðstöfun úr sérstökum varasjóði félagsins.
- Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðenda félagsins.
- Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar félagsins.
- Önnur mál.
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku utan þess að ársreikningur félagsins er eingöngu aðgengilegur á ensku. Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, Reykjavík, hluthöfum til sýnis í 21 dag fyrir aðalfund. Umrædd gögn, ásamt upplýsingum um frambjóðendur til stjórnar, eru einnig birt á heimasíðu félagsins, https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/.
Um frekari upplýsingar vísast til meðfylgjandi fundarboðs.
Viðhengi