Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2022

Föstudaginn 11. mars 2022 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hotel Reykjavík Natura. Fundurinn hófst kl. 11.00.

Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum má finna á vefsíðu félagsins: https://www.reitir.is/is/reitir/fjarfestayfirlit/hluthafafundir-reita

1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár
Aðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2021.

2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári
Tillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 1,73 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2021 var samþykkt. Arðgreiðsludagur verður þann 31. mars 2022, 14. mars 2022 er arðleysisdagur og 15. mars 2022 verður arðsréttindadagur.

3. Heimild til kaupa á eigin bréfum
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um heimild til kaupa á eigin bréfum.

4. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum
Tillaga um lækkun hlutafjár úr 778.476.201 kr. í 763.138.233 kr. og tilheyrandi breyting á 4. gr. samþykkta félagsins var samþykkt.

5. Breytingar á samþykktum félagsins
Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um breytingar á 10. gr., 3. mgr. 11. gr. og 2. mgr. 17. gr. samþykkta félagsins. Breytingarnar má sjá í tillögum stjórnar fyrir aðalfund á ofangreindri vefsíðu félagsins, en breyting á 2. mgr. 17. gr. tók lítillega breytingum á fundinum sem lutu að orðalagi en ekki efni.

6. Starfskjarastefna félagsins
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytta starfskjarastefnu félagsins.

7. Skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd
Aðalfundur staðfesti skipun Margretar Flóvenz, Berglindar Óskar Guðmundsdóttur og Hilmars G. Hjaltasonar í tilnefningarnefnd félagsins.

8. Kjör stjórnarmanna félagsins
Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér til setu í stjórn félagsins og voru þau sjálfkjörin:
Gréta María Grétarsdóttir, Kristinn Albertsson, Martha Eiríksdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Þórarinn V. Þórarinsson

9. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
Aðalfundur samþykkti að Ernst & Young ehf. yrði endurskoðunarfélag félagsins.

10. Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár
Aðalfundur félagsins samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun fyrir komandi starfsár skuli vera 380.000 kr. fyrir stjórnarmenn  en laun stjórnarformanns verði tvöföld stjórnarlaun. Þóknun til formanns endurskoðunarnefndar verður 145.000 kr. á mánuði og til annarra nefndarmanna 84.000 kr. á mánuði. Þóknun nefndarmanna í starfskjaranefnd verður 40.000 kr. á mánuði. Fyrir störf í tilnefningarnefnd fær hvor nefndarmaður greiddar 720.000 kr. fyrir starfsárið, en formaður nefndarinnar fær greiddar 1.080.000 kr. fyrir starfsárið. Greiðslur til endurskoðenda félagsins skulu vera samkvæmt reikningi.

11. Önnur mál
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl. 11.55.