Í viku 10 keypti Reginn 869.246 eigin hluti að kaupverði 28.729.514 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
7.3.2022 | 09:36:29 | 369.361 | 32,20 | 11.893.424 |
9.3.2022 | 11:13:22 | 100.000 | 32,40 | 3.240.000 |
11.3.2022 | 15:03:04 | 399.885 | 34,00 | 13.596.090 |
Samtals | 869.246 | 28.729.514 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. febrúar og 11. mars 2022.
Reginn átti 3.158.091 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 4.027.337 eigin hluti eða sem nemur 0,22% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt 4.027.337 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,22% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 136.339.276 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.060.241 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar:
Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– rosa@reginn.is – S: 844 4776