Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á fjárhagsdagatali Regins hf.
Afkoma annars ársfjórðungs 2022 verður birt 22. ágúst í stað 19. ágúst.
Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða.
Stjórn félagsins hefur skipt með sér verkum:
Tómas Kristjánsson var kjörinn formaður stjórnar og Bryndís Hrafnkelsdóttir varaformaður stjórnar. Aðrir stjórnarmenn eru Benedikt Olgeirsson, Guðrún Tinna Ólafsdóttir og Heiðrún Jónsdóttir.
Í endurskoðunarnefnd tóku sæti Anna Þórðardóttir löggiltur endurskoðandi sem formaður og stjórnarmennirnir Benedikt Olgeirsson og Heiðrún Jónsdóttir.
Í starfskjaranefnd tóku sæti stjórnarmennirnir Guðrún Tinna Ólafsdóttir sem formaður, Tómas Kristjánsson og Bryndís Hrafnkelsdóttir.
Áðurnefnd skipan felur í sér að kynjahlutfall stjórnar er 60% konur og 40% karlar. Hlutfall kvenna í undirnefndum stjórnar er 67% og karla 33%.
Nánari upplýsingar:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262