Islandsbanki hf.: Niðurstöður aðalfundar 2022


Aðalfundur Íslandsbanka hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 17. mars 2022, á Grand hótel Reykjavík. Jafnframt var gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Hallgrímur Snorrason, fráfarandi stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar og Birna Einarsdóttir, bankastjóri, fór yfir starfsemi og afkomu bankans á árinu 2021. Ársreikningur bankans var samþykktur sem og tillaga um greiðslu arðs að upphæð 5,95 krónur á hlut, sem jafngildir um 11,9 milljörðum króna Ákvað fundurinn að Ernst & Young gegni áfram hlutverki sínu sem endurskoðandi Íslandsbanka.

Samþykkt var heimild stjórnar til að kaupa fyrir hönd bankans allt að 10% af hlutafé hans. Heimild þessi skal nýtt í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi þar sem jafnræðis hluthafa er gætt við boð um þátttöku eða á annan hátt sem stjórnin telur bankanum og hluthöfum hans hagfellt.

Sjálfkjörið var í stjórn bankans og stöður varamanna án sérstakrar atkvæðagreiðslu. Í stjórn Íslandsbanka sitja því nú eftirfarandi sjö stjórnarmenn:

  • Anna Þórðardóttir
  • Ari Daníelsson
  • Finnur Árnason
  • Frosti Ólafsson
  • Guðrún Þorgeirsdóttir
  • Heiðrún Jónsdóttir
  • Tanya Zharov

Finnur Árnason var kjörinn formaður stjórnar.

Varamenn í stjórn Íslandsbanka eru:

  • Herdís Gunnarsdóttir
  • Páll Grétar Steingrímsson

Samþykkt var tillaga stjórnar um þóknun stjórnarmanna og laun varamanna. Jafnframt voru starfskjarastefna bankans og starfsreglur tilnefningarnefndar samþykktar óbreyttar. 

Í meðfylgjandi skjali greinir nánar frá niðurstöðum fundarins.

Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl – Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, ir@islandsbanki.is. Sími: 844 4033.

Samskiptastjóri – Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is. Sími: 844 4005.

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.

Viðhengi



Attachments

Niðurstöður aðalfundar Íslandsbanka hf 2022