Source: Vátryggingafélag Íslands hf.

VÍS: Niðurstöður aðalfundar þann 17. mars 2022

Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. var haldinn fimmtudaginn 17. mars 2022. Meðfylgjandi er samantekt á niðurstöðum fundarins. Jafnframt eru meðfylgjandi uppfærðar samþykktir og samþykkt starfskjarastefna vegna ársins 2022.

Eftirfarandi aðilar voru kjörnir í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár og hafa stjórnarmenn skipt með sér verkum. Nánari upplýsingar um stjórnarmenn er að finna í viðhengi.

Stjórnin er skipuð með eftirfarandi hætti:

Aðalstjórn:

Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður

Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar

Guðný Hansdóttir

Marta Guðrún Blöndal

Valdimar Svavarsson

Varastjórn:

Ragnheiður Hrefna Magnúsdóttir

Sveinn Friðrik Sveinsson

Viðhengi