Ársreikningur Félagsbústaða 2021


Ársreikningur Félagsbústaða 2021

Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti ársreikning félagsins fyrir árið 2021 á fundi sínum í dag 17. mars.

Hagnaður vegna hækkunar á eignasafni

Hagnaður félagsins á árinu nam 18.491 m.kr. og er hann allur tilkominn vegna hækkunar á virði fasteignamats eigna félagsins. (Hagnaðurinn verður ekki innleystur nema með eignasölu.)

Sjóðstreymi Félagsbústaða sýnir að handbært fé frá rekstri var 1.210 m.kr. samanborið við 889 m.kr. árið áður. Afborganir langtíma lána námu 1.192 m.kr. Helstu kennitölur reikningsins eru:

  • Rekstrartekjur ársins námu 5.123 m.kr.
  • Afkoma fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 2.267 m.kr. eða 44,3% af rekstrartekjum
  • Matshækkun fjárfestingareigna á árinu námu 19.633 m.kr.
  • Virði fjárfestingareigna í lok ársins er 123.808 m.kr.
  • Eigið fé í lok tímabilsins er 67.311 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall í lok ársins er 53,2%
  • Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils nema 52.460 m.kr.

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða á árinu 2021 námu 5.123 m.kr., er það aukning um 9,9% milli ára sem skýrist af hækkun leiguverðs vegna verðlagsbreytinga og stækkun eignasafnsins. Rekstur og viðhald eigna hækkar um 279 m.kr. eða um 13,6% á milli ára. Rekstrarhagnaðarhlutfall (EBIT%) er 44,3% samanborið við 46,4% fyrir árið 2020.

Eignasafn og efnahagur

Heildareignir félagsins námu 126.447 m.kr. í lok árs en þær jukust um 25,9% frá ársbyrjun. Fjárfestingareignir jukust um 24,9% eða 24.705 m.kr., fjárfest var fyrir 4.037 m.kr. og matsbreyting nam 20.668 m.kr. Heildarskuldir nema 53.180 m.kr. og hækkuðu um 4.498 m.kr. á árinu. Eigið fé hækkaði um 37,9% á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall í lok árs var 53,2% en 48,6% í lok árs 2020.

Skuldabréfaútboð

Félagsbústaðir eru með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgja þeim reglum sem gilda um skráð félög. Samþykktir félagsins kveða einnig á um fyrirkomulag ýmissa þátta í starfseminni og eru þær aðgengilegar á vefsíðu þess ásamt þeim lögum sem gilda um félagið.

Félagið stækkaði félagslega skuldabréfaflokkinn FB100366 SB tvisvar sinnum á árinu. Í mars voru gefnar úr 1.950 m.kr. að nafnvirði í skuldabréfaflokknum á ávöxtunarkröfunni 1,69% og í desember var flokkurinn aftur stækkaður um 5.200 m.kr. að nafnvirði þá á ávöxtunarkröfunni 1,45%. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með ársfjórðungslegum jöfnum greiðslum til lokadags þann 10. Mars 2066 og hann ber einfalda ábyrgð Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið gefnar út 18.800 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum. Flokkurinn er skráður á Sustainable Bond markaði Nasdaq Iceland.

Þróun eignasafns

Félagsbústaðir keyptu 117 fasteignir og seldu 9 fasteignir á árinu 2021 en áform voru um að fjölga leigueiningum um 125 á tímabilinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is, sími 520 1500

Viðhengi



Attachments

Ársreikningur Félagsbústaða 2021 Áhrifaskýrsla 2021 Sjálfbærniskýrsla 2021 Ársreikningur Félagsbústaða 2021