Hagar hf.: Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar Haga hf. 2022


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn miðvikudaginn 1. júní 2022.

Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við nefndina í aðdraganda aðalfundar 2022 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en 13. apríl nk. á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is.

Þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en 22. apríl 2022 á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað sem finna má hér í viðhengi og á vefsíðu Haga en þar þarf meðal annars að upplýsa um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk þess að gera grein fyrir hvernig frambjóðandi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við Samkeppniseftirlitið frá september 2018.

Auk framboðseyðublaðs má í viðhengi og á heimasíðu Haga finna nánari upplýsingar um viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum. Sjá hér: www.hagar.is/fjarfestar/hluthafafundir/.

Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar þann 10. maí nk.

Tilnefningarnefnd Haga hf.

Viðhengi



Attachments

Viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum 2022 Framboð til stjórnarsetu 2022 - eyðublað ritfært