Á aðalfundi Símans hf. þann 10. mars 2022 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutfé félagsins. Lækkunin nemur kr. 240.000.000 að nafnverði, eða sem nemur jafn mörgum hlutum. Eftir lækkunina er hlutafé félagsins kr. 7.300.000.000, sem skiptist í jafn marga hluti, hvern að nafnverði ein króna og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun sem var samþykkt á aðalfundi félagsins þann 11. mars 2021 á grundvelli 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Beiðni hefur verið send á Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd föstudaginn 25. mars 2022.
Vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 11. mars sl. þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.