Eimskip: Lækkun hlutafjár


Vísað er til fréttatilkynningar frá 17. mars sl. um niðurstöður aðalfundar Eimskipafélags Íslands hf. hvar samþykkt var tillaga stjórnar félagsins varðandi lækkun hlutafjár, um samtals kr. 2.150.000 að nafnverði þannig að hlutafé verði kr. 173.050.000 að nafnverði eftir lækkunina. Hlutafé verður lækkað með greiðslu til hluthafa.

Fyrirtækjaskrá Skattsins hefur nú samþykkt að veita félaginu undanþágu frá innköllunarskyldu vegna þessara lækkana og hafa lögboðnar forsendur fyrir lækkun hlutafjár nú verið uppfylltar, sbr. sbr. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa

Þessi lækkun á hlutafé félagsins nemur kr. 2.150.000 að nafnverði með greiðslu sem nemur kr. 1.075.000.000. Fjárhæðin verður greidd út til hluthafa félagsins þann 27. apríl 2022, hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra m.v. skráningu í hlutaskrá í lok dags. 26. apríl 2022. Lækkunarfjárhæð sem er umfram nafnverð mun verða færð til lækkunar á yfirverðsreikningi, eða kr. 1.072.850.000

Síðasti viðskiptadagur með réttindum til útgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár verður því föstudagurinn 22. apríl 2022. Framkvæmd þessara hlutafjárlækkunar verður með eftirfarandi hætti:

  • X-dagur 25. apríl 2022
  • Viðmiðundagur 26. apríl 2022
  • Lækkunardagur 27. apríl 2022
  • Greiðsludagur 27. apríl 2022


Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.