Framboðsfrestur til stjórnar Kviku banka hf. rann út þann 26. mars 2022. Eftirtaldir einstaklingar gáfu kost á sér til setu í stjórn á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður kl. 16:00 þann 31. mars á Grand Hótel, Háteigi, Sigtúni 28, 105 Reykjavík, auk þess sem boðið er upp á fullgilda rafræna þátttöku í gegnum Lumi AGM:
Í framboði til stjórnar:
- Sigurður Hannesson
- Guðmundur Þórðarson
- Guðjón Reynisson
- Helga Kristín Auðunsdóttir
- Ingunn Svala Leifsdóttir
Í framboði sem varamenn í stjórn:
- Helga Jóhanna Oddsdóttir
- Sigurgeir Guðlaugsson
Það er mat stjórnar að öll framboð séu gild, sbr. 63. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Þar sem fleiri framboð bárust ekki til stjórnar og varastjórnar eru frambjóðendur sjálfkjörnir.
Athygli er vakin á því að hluthafar eða umboðsmenn þeirra sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni https://www.connectbylumi.com/event/8f20adae-e861-4f93-b9c0-98a4514d41ed/regProcessStep1 eigi síðar en kl. 16.00 þann 30. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af gildum skilríkjum og umboð, ef við á. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM, hvort sem hluthafar mæta til fundarins á Grand Hótel eða taka þátt í rafrænni skráningu. Nánari upplýsingar um frambjóðendur og aðrar upplýsingar um framkvæmd aðalfundar eru aðgengilegar hér: https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/.