Helgi Þór Logason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Festi fasteigna ehf.


Helgi er viðskiptafræðingur, cand.oecon, frá Háskóla Íslands 1998 og MBA frá McDonough School of Business Georgetown University 2009. Hann starfaði hjá Landsbréfum 1998 til 2001 og hjá Íslandsbanka 2001 – 2007 við fjárfestingar og var fjármálastjóri Fjarðarlax og framkvæmdastjóri Kex hostel. Helgi var ráðinn til Festi hf. í nóvember 2020 sem aðstoðarmaður framkvæmdastjórnar og mun áfram sinna ýmsum verkefnum tengdum greiningum á frekari tækifærum Festi til frekari vaxtar.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Kristófersson, forstjóri, (eggert@festi.is).