Reginn hf. (Nasdaq: REGINN) hefur lokið útboði á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki REGINN280429. Alls bárust tilboð að fjárhæð 4.660 m.kr. að nafnverði.
Ákveðið var að taka tilboðum að fjárhæð 3.000 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,03%. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.
Uppgjör viðskiptanna er fyrirhugað þann 8. apríl næstkomandi, óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.
Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna ásamt töku þeirra til viðskipta á Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar:
Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– rosa@reginn.is - S: 512 8900 / 844 4776