Í viku 13 keypti Reginn 799.770 eigin hluti að kaupverði 29.391.548 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
30.3.2022 | 14:28:58 | 399.885 | 36,40 | 14.555.814 |
1.4.2022 | 10:22:45 | 399.885 | 37,10 | 14.835.734 |
Samtals | 799.770 | 29.391.548 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. febrúar og 11. mars 2022.
Reginn átti 5.919.802 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 6.719.572 eigin hluti eða sem nemur 0,37% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt 6.719.572 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,37% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 234.706.979 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.060.241 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar:
Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– rosa@reginn.is – S: 844 4776