Eigendur fasteignanna að Hafnarstræti 17-19, Hafnarstræti 18 og Þingholtsstræti 2-4 í Reykjavík hafa samþykkt kauptilboð Regins í fasteignirnar. Kauptilboðið er háð fyrirvörum, meðal annars um áreiðanleikakönnun og fráfalli forkaupsréttar. Áætlað er að kaupsamningur um fasteignirnar verði undirritaður í maí 2022.
Heildarvirði fasteignanna er samtals að fjárhæð kr. 5.550 milljónir og verður að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé. Áætlaðar leigutekjur miðað við fulla útleigu fasteignanna á ársgrundvelli nema um kr. 440 milljónum og áætluð leiguarðsemi er 6,5% (e.yield).
Heildarfermetrafjöldi fasteignanna er 6.777 m2, að stærstum hluta hótel og gististarfsemi. Leigutakar eru fimm talsins og þar af er Flugleiðahótel hf. stærsti leigutakinn með langtíma leigusamning í fasteigninni þar sem rekið er hótelið Reykjavík Konsúlat.
Eignirnar falla vel að eignasafni Regins og eru staðsettar á kjarnasvæði félagsins í miðbæ Reykjavíkur.
Ráðgjafi Regins í viðskiptunum er Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka.
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262