Með vísan til 23. gr. endanlegra skilmála skuldabréfaflokksins LYKILL 26 05 (IS0000031193) tilkynnist hér með að útgefandi (nú Kvika banki hf.) mun greiða upp útistandandi höfuðstól og áfallna vexti skuldabréfaflokksins á næsta gjalddaga, þann 15. maí 2022 (greiðsla fer fram þann 16. maí). Í samræmi við endanlega skilmála skuldabréfaflokksins greiðir útgefandi 1,50% uppgreiðslugjald á eftirstöðvar höfuðstóls vegna fyrirframgreiðslunnar.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason forstöðumaður fjárstýringar, halldor.hognason@kvika.is / s: 540 3200.