SKEL fjárfestingafélag hf.: Veiting kauprétta


Samhliða ráðningu Ásgeirs Helga Reykfjörðs Gylfasonar og Magnúsar Inga Einarssonar hefur stjórn SKEL fjárfestingafélags hf. samþykkt að gera við þá kaupréttarsamninga um hluti í félaginu í samræmi við ákvæði kaupréttaráætlunar félagsins sem samþykkt var á aðalfundi þann 10. mars sl.

Samningunum er ætlað að samtvinna langtíma hagsmuni félagsins, starfsmanna og hluthafa.

Meginefni kaupréttarsamninganna er sem hér segir:

  • Nýtingarverð kaupréttanna er kr. 16,4280 á hlut, sem nemur vegnu meðalverði í viðskiptum með hluti í SKEL á Nasdaq Iceland tíu heila viðskiptadaga fyrir þann dag sem samningur er gerður, og skal verðið leiðrétt (til lækkunar) fyrir framtíðararðgreiðslum og samsvarandi úthlutun til hluthafa og leiðrétt (til hækkunar) með 7% föstum ársvöxtum frá úthlutunardegi og fram að fyrsta mögulega nýtingardegi fyrir hvert nýtingartímabil.
  • Ávinnslutími er þrjú ár frá úthlutun og hefst nýtingartímabil þegar í stað að honum loknum en þá er unnt að nýta 1/3 af kauprétti, ári eftir það er unnt að nýta 1/3 af kauprétti og ári eftir það 1/3 af kauprétti.
  • Greitt skal fyrir kaupréttarhlutina með reiðufé þegar og ef þeir verða nýttir.
  • Ákveðið hlutfall af kaupréttarhlutum, 15% innleysts hagnaðar kaupréttarhafa, ef um hagnað verður að ræða, að frádregnum öllum sköttum og öðrum skyldugreiðslum í formi hlutafjár í félaginu, skal geyma til starfsloka.
  • Almennt séð falla kaupréttir niður fyrir ávinnslutíma ef ráðningarsambandi kaupréttarhafa við félagið er slitið.

Í kjölfar úthlutunar kaupréttanna nemur heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem SKEL hefur veitt lykilstarfsmönnum sínum 96.801.689 hlutum eða um 5% hlutafjár í félaginu. Nánari upplýsingar í viðhengi.

Nánari upplýsingar veitir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður SKEL fjárfestingafélags hf. (fjarfestar@skel.is)

www.skel.is

Viðhengi



Attachments

ÁHRG MIE