Í viku 14 keypti Reginn 1.599.540 eigin hluti að kaupverði 61.382.348 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
4.4.2022 | 12:10:57 | 399.885 | 38,00 | 15.195.630 |
5.4.2022 | 11:26:33 | 399.885 | 38,70 | 15.475.550 |
6.4.2022 | 13:57:59 | 399.885 | 38,40 | 15.355.584 |
8.4.2022 | 14:08:44 | 99.885 | 38,40 | 3.835.584 |
8.4.2022 | 14:08:44 | 300.000 | 38,40 | 11.520.000 |
Samtals | 1.599.540 | 61.382.348 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. febrúar og 11. mars 2022.
Reginn átti 6.719.572 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 8.319.112 eigin hluti eða sem nemur 0,46% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt 8.319.112 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,46% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 296.089.326 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.060.241 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar:
Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– rosa@reginn.is – S: 844 4776