Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár


Á aðalfundi Kviku sem haldinn var þann 31. mars 2022 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 117.256.300 kr. að nafnvirði, eða sem nemur 117.256.300 hlutum, úr 4.934.561.607 kr. í 4.817.305.307 kr. að nafnvirði, með niðurfellingu eigin hluta félagsins að framangreindri fjárhæð. Um er að ræða hluti sem voru keyptir samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun á árinu 2021. 

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.817.305.307.