Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu ársuppgjörs 2021/22


Hagar hf. birta uppgjör 4. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. desember til 28. febrúar 2022, og ársuppgjör félagsins eftir lokun markaða, fimmtudaginn 28. apríl nk.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, föstudaginn 29. apríl kl. 08:30. Þar mun Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Fundinum verður auk þess varpað í gegnum netið á vefslóðinni https://vimeo.com/event/2002311/embed/2826252e47

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.