Eimskip: Heildarfjöldi hluta og atkvæða


Vísað er til hlutafjárlækkunar félagsins sem var framkvæmd með lækkun hlutafjár að fjárhæð kr. 2.150.000 með greiðslu til hluthafa þann 27. apríl 2022.

Í 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þessa mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Með vísan til þessa upplýsist að hlutafé félagsins er kr. 173.050.000 og hver hlutur er ein króna. Eigin hlutir eru kr. 31.307 og heildarfjöldi atkvæða því kr. 173.018.693.