Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár


Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir 4 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 4.366.667 kr., um nýtingu réttindanna.

Ein tilkynning var um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II, þ.e. að 1.200.000 nýjum hlutun, og þrjár tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2017 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV, þ.e. að 3.166.667 nýjum hlutum í félaginu.

Framangreint felur í sér nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 4.366.667 nýjum hlutum. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 41.313.336 og því er reiknað meðalgengi 9,4610690.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.


Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæða II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 4.366.667 og mun eftir hækkun standa í kr. 4.821.671.974 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II mun í kjölfarið vera samtals kr. 68.425.000 að nafnvirði og á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV kr. 93.366.676 að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.