Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 28. apríl sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæðum II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 4.366.667 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Samkvæmt 19. gr. laga um upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 skal útgefandi, ef hann hækkar eða lækkar hlutafé sitt eða fjölgar eða fækkar atkvæðum, við fyrsta tækifæri og eigi síðar en á síðasta viðskiptadegi mánaðar birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Framangreind hlutafjárhækkun hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.821.671.974 að nafnvirði.  Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé utan eigin hluta. Eftir lækkun hlutafjár með niðurfellungu eigin hluta, sbr. tilkynning dags. 20. apríl 2022, á bankinn í dag enga eigin hluti.

Óskað hefur verið eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og sótt verður um töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.