Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár

Á aðalfundi Reita fasteignafélags hf. þann 11. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 15.337.968 kr. að nafnvirði. Lækkunin tók til eigin hluta félagsins sem það eignaðist með kaupum í samræmi við endurkaupaáætlanir stjórnar sem aðalfundur félagsins 2021 veitti heimild fyrir, og því þannig eytt.

Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 763.138.233 kr. en var fyrir lækkunina 778.476.201 kr. að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416.