Í viku 18 keypti Reginn 1.287.165 eigin hluti að kaupverði 48.715.277 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
3.5.2022 | 15:08:06 | 225.720 | 38,00 | 8.577.360 |
4.5.2022 | 14:13:42 | 399.885 | 38,10 | 15.235.619 |
5.5.2022 | 10:01:13 | 30.000 | 37,80 | 1.134.000 |
5.5.2022 | 10:01:28 | 369.885 | 37,80 | 13.981.653 |
6.5.2022 | 09:32:50 | 261.675 | 37,40 | 9.786.645 |
Samtals | 1.287.165 | 48.715.277 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. febrúar og 11. mars 2022.
Reginn átti 12.317.962 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 13.605.127 eigin hluti eða sem nemur 0,75% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Reginn hefur keypt 13.605.127 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,75% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 499.999.971 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 15.060.241 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð mátti þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar:
Rósa Guðmundsdóttir – Framkvæmdastjóri fjármála– rosa@reginn.is – S: 844 4776