Kvika banki hf.: Birting ársfjórðungsuppgjörs og kynningarfundur fimmtudaginn 12. maí


Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki ársreikning samstæðunnar fyrir fyrstu 3 mánuði ársins 2022 á stjórnarfundi fimmtudaginn 12. maí og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 12.maí  kl. 16:15, í höfuðstöðvum bankans, á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður einnig gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is.

Fjárfestakynning sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg fyrir fundinn.