Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 20 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 62.300.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
19.5.202211:03:211.000.00020,620.600.000
20.5.202209:49:141.000.00020,820.800.000
20.5.202214:19:371.000.00020,920.900.000
Samtals 3.000.000 62.300.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.

Kvika átti enga eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 3.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,062% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 62.300.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 kr. að kaupverði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.