Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 20

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 27. apríl 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. apríl 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 20. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 2.250.000 eigin hluti að kaupverði 219.887.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Reita  eftir viðskipti
16.5.202210:59
300.00099,2529.775.0003.326.033
16.5.202213:46150.00099,2514.887.5003.476.033
17.5.202210:16150..00010115.150.0003.626.033
18.5.202209:47250.00010125.250.0003.876.033
18.5.202210:33100.00010010.000.0003.976.033
18.5.202210:33250.00010025.000.0004.226.033
19.5.202209:43200.00094.5018.900.0004.426.033
19.5.202209:43250.00094,5023.625.0004.676.033
20.5.202210:45300.00095,5028.650.0004.976.033
20.5.2022 14:21 300.000 95,50 28.650.000 5.276.033 
Samtals 2.250.000 219.887.500
5.276.033


Reitir hafa nú keypt samtals 5.276.033 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 87,93% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 528.841.454 kr. sem samsvarar 81,36% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 5.276.033 eigin hluti, eða um 0,69% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 650 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is