Í viku 21 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 164.200.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
23.5.2022 | 09:51:09 | 2.000.000 | 20,8 | 41.600.000 |
24.5.2022 | 15:00:32 | 2.000.000 | 20,4 | 40.800.000 |
25.5.2022 | 11:03:03 | 300.000 | 20,45 | 6.135.000 |
25.5.2022 | 11:18:39 | 1.000.000 | 20,45 | 20.450.000 |
25.5.2022 | 11:20:14 | 700.000 | 20,45 | 14.315.000 |
27.5.2022 | 09:38:27 | 2.000.000 | 20,45 | 40.900.000 |
Samtals | 8.000.000 | 164.200.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 3.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 11.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,228% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 226.500.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.