Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Birting grunnlýsingar

Reitir fasteignafélag hf., kt. 711208-0700, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 1. júní 2022, staðfest af Fjármálaeftirlitinu, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Reita, www.reitir.is/fjarfestar. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins að Kringlunni 4-12 í Reykjavík. Nánari upplýsingar um Reiti fasteignafélag hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu.

Upplýsingar veitir: Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.

Viðhengi