Í viku 22 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 9.000.000 eigin hluti að kaupverði 177.200.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
30.5.2022 | 13:28:04 | 2.000.000 | 19,75 | 39.500.000 |
31.5.2022 | 09:37:37 | 1.000.000 | 19,75 | 19.750.000 |
31.5.2022 | 09:58:09 | 1.000.000 | 19,75 | 19.750.000 |
1.6.2022 | 09:42:28 | 1.000.000 | 19,65 | 19.650.000 |
1.6.2022 | 09:48:27 | 1.000.000 | 19,65 | 19.650.000 |
2.6.2022 | 10:33:47 | 1.000.000 | 19,65 | 19.650.000 |
2.6.2022 | 10:38:05 | 1.000.000 | 19,6 | 19.600.000 |
3.6.2022 | 15:12:11 | 1.000.000 | 19,65 | 19.650.000 |
Samtals | 9.000.000 | 177.200.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 11.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 20.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,414% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 403.700.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.