Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 24. maí 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 25. maí 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. maí 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 22. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.600.000 eigin hluti að kaupverði 151.500.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Reita eftir viðskipti |
31.5.2022 | 09:57 | 400.000 | 95,50 | 38.200.000 | 6.800.000 |
1.6.2022 | 13:25 | 400.000 | 94,75 | 37.900.000 | 7.200.000 |
2.6.2022 | 10:55 | 200.000 | 94,50 | 18.900.000 | 7.400.000 |
2.6.2022 | 10:55 | 200.000 | 94,50 | 18.900.000 | 7.600.000 |
3.6.2022 | 10:42 | 400.000 | 94,00 | 37.600.000 | 8.000.000 |
Samtals | 1.600.000 | 151.500.000 | 8.000.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 2.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 40,00% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 189.500.000 kr. sem samsvarar 36,09% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 8.000.000 eigin hluti, eða um 1,05% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is