Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 22. viku 2022 keypti Eimskip 260.000 eigin hluti fyrir kr. 129.630.000 samkvæmt neðangreindu:

Dagsetning Tímasetning viðskipta Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð
1.6.2022 13:13:01               40.000 500,00         20.000.000    
1.6.2022 14:28:33               30.000 498,00         14.940.000    
2.6.2022 11:00:58               50.000 498,00         24.900.000    
2.6.2022 12:35:45               40.000 498,00         19.920.000    
2.6.2022 14:48:09               30.000 498,00         14.940.000    
3.6.2022 12:04:55               50.000 499,00         24.950.000    
3.6.2022 15:23:43               20.000 499,00           9.980.000    
Samtals              260.000        129.630.000    

Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í kauphöll þann 30. maí 2022.

Eimskip átti 31.307 eigin hluti fyrir viðskipti en á að þeim loknum 291.307 hluti sem nemur 0,17% af heildarhlutafé félagsins.

Eimskip hefur keypt samtals 260.000 hluti í félaginu, eða sem nemur 0,17% af heildarhlutafé félagsins, að fjárhæð kr. 129.630.000 að markaðsvirði í endurkaupaáætluninni.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 1.730.000 hluta og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 900.000.000. Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 17. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.