Í viku 23 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 117.912.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
7.6.2022 | 14:06:01 | 500.000 | 19,65 | 9.825.000 |
7.6.2022 | 14:48:44 | 1.500.000 | 19,625 | 29.437.500 |
8.6.2022 | 14:23:55 | 2.000.000 | 19,625 | 39.250.000 |
10.6.2022 | 14:03:01 | 2.000.000 | 19,7 | 39.400.000 |
Samtals | 6.000.000 | 117.912.500 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 20.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 26.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,538% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 521.612.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.