Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 24. maí 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 25. maí 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. maí 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 23. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 790.000 eigin hluti að kaupverði 73.775.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Reita eftir viðskipti |
7.6.2022 | 11:23 | 400.000 | 93,50 | 37.400.000 | 8.400.000 |
8.6.2022 | 10:53 | 190.000 | 92,50 | 17.575.000 | 8.590.000 |
10.6.2022 | 14:18 | 200.000 | 94,00 | 18.800.000 | 8.790.000 |
Samtals | 790.000 | 73.775.000 | 8.790.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 2.790.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 55,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 263.275.000 kr. sem samsvarar 50,1% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 8.790.000 eigin hluti, eða um 1,15% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is