Í 24. viku 2022 keypti Eimskip 430.743 eigin hluti fyrir kr. 207.374.925 samkvæmt neðangreindu:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
13.6.2022 | 10:34:32 | 50.000 | 490 | 24.500.000 |
13.6.2022 | 13:35:29 | 40.000 | 487 | 19.480.000 |
13.6.2022 | 14:51:02 | 30.000 | 487 | 14.610.000 |
14.6.2022 | 13:29:23 | 19.755 | 487 | 9.620.685 |
14.6.2022 | 13:39:02 | 30.000 | 487 | 14.610.000 |
14.6.2022 | 14:09:23 | 20.000 | 487 | 9.740.000 |
14.6.2022 | 14:21:14 | 50.000 | 484 | 24.200.000 |
15.6.2022 | 13:38:43 | 50.000 | 482 | 24.100.000 |
15.6.2022 | 14:59:11 | 20.000 | 482 | 9.640.000 |
15.6.2022 | 15:29:41 | 988 | 480 | 474.240 |
16.6.2022 | 12:33:46 | 50.000 | 470 | 23.500.000 |
16.6.2022 | 13:34:40 | 50.000 | 470 | 23.500.000 |
16.6.2022 | 14:25:25 | 20.000 | 470 | 9.400.000 |
Samtals | 430.743 | 207.374.925 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í kauphöll þann 30. maí 2022.
Eimskip átti 621.307 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 1.052.050 hluti sem nemur 0,61% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip hefur keypt samtals 1.020.743 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 59% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð er samtals kr. 502.254.925 sem nemur 56% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 1.730.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 900.000.000. Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 17. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.