Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 24. maí 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 25. maí 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. maí 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 24. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.500.000 eigin hluti að kaupverði 138.375.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Reita eftir viðskiptin |
13.6.2022 | 11:28 | 200.000 | 93,50 | 18.700.000 | 8.990.000 |
13.6.2022 | 15:03 | 200.000 | 93,50 | 18.700.000 | 9.190.000 |
14.6.2022 | 11:35 | 400.000 | 93,50 | 37.400.000 | 9.590.000 |
15.6.2022 | 14:53 | 300.000 | 92,25 | 27.675.000 | 9.890.000 |
16.6.2022 | 09:37 | 200.000 | 90,50 | 18.100.000 | 10.090.000 |
16.6.2022 | 15:26 | 200.000 | 89,00 | 17.800.000 | 10.290.000 |
Samtals | 1.500.000 | 138.375.000 | 10.290.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 4.290.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 85,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 401.650.000 kr. sem samsvarar 76,5% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 10.290.000 eigin hluti, eða um 1,35% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is