Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 25 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 146.525.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
20.6.202211:56:522.000.00018,32536.650.000
21.6.202214:53:451.000.00018,3518.350.000
21.6.202214:56:501.000.00018,3518.350.000
22.6.202209:32:431.000.00018,2518.250.000
22.6.202215:24:231.000.00018,32518.325.000
23.6.202214:22:052.000.00018,336.600.000
Samtals 8.000.000 145.525.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.

Kvika átti 31.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 39.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,807% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 763.887.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu ir@kvika.is