Festi hf.: Endurkaup vika 26


Í 26 viku 2022 keypti Festi alls 225.000 eigin hluti fyrir 45.800.000 kr. eins og hér segir:


VikaDagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðKeyptir hlutir allsHeildar kaupverð alls
2622.6.202212:03:3750.00020010.000.00050.00010.000.000
2622.6.202214:22:0050.00020210.100.000100.00020.100.000
2622.6.202215:12:1750.00020210.100.000150.00030.200.000
2624.6.202214:08:4375.00020815.600.000225.00045.800.000
   225.000 45.800.000  


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka II við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Fyrir kaupin þá átti Festi enga hluti í félaginu. Festi hefur nú keypt samtals 225.000 eigin hluti fyrir 45.800.000 kr. og á í dag 225.000 hluti sem samsvarar 0,07% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júní 2022 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 5.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,60% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.150 milljónum króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).