Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 24. maí 2022 og var henni hrint í framkvæmd þann 25. maí 2022, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. maí 2022. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 25. viku 2022 keypti Reitir fasteignafélag hf. 400.000 eigin hluti að kaupverði 35.400.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Reita eftir viðskiptin |
23.6.2022 | 11:09 | 200.000 | 88,50 | 17.700.000 | 10.490.000 |
23.6.2022 | 11:14 | 200.000 | 88,50 | 17.700.000 | 10.690.000 |
Samtals | 400.000 | 35.400.000 | 10.690.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 4.690.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 93,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 437.050.000 kr. sem samsvarar 83,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 10.690.000 eigin hluti, eða um 1,40% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is