Í viku 26 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 192.250.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
27.6.2022 | 10:54:27 | 1.000.000 | 19,15 | 19.150.000 |
27.6.2022 | 14:35:58 | 1.000.000 | 19,3 | 19.300.000 |
28.6.2022 | 14:29:51 | 1.000.000 | 19,65 | 19.650.000 |
28.6.2022 | 14:32:42 | 1.000.000 | 19,65 | 19.650.000 |
29.6.2022 | 09:36:50 | 1.000.000 | 19,1 | 19.100.000 |
29.6.2022 | 13:53:42 | 1.000.000 | 19,2 | 19.200.000 |
30.6.2022 | 09:39:53 | 1.000.000 | 19,1 | 19.100.000 |
30.6.2022 | 13:48:59 | 1.000.000 | 19,1 | 19.100.000 |
1.7.2022 | 14:43:53 | 2.000.000 | 19 | 38.000.000 |
Samtals | 10.000.000 | 192.250.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 39.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 49.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,014% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 956.137.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is