Alma íbúðafélag hf. hefur lokið við stækkun á skuldabréfaflokknum AL280629 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.
Skuldabréfaflokkurinn AL280629 er verðtryggður á föstum vöxtum, til 7 ára, en endurgreiðsluferli afborgana fylgir 15 ára jafngreiðsluferli. Flokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.860 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,8% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar 4.020 m.kr.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 11. júlí 2022 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
Arion banki hf. hefur umsjón með töku þeirra til viðskipta.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is